Þann 8. janúar 2012 verða liðin 100 ár frá fæðingardegi Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings, eins ástsælasta vísindamanns þjóðarinnar á síðustu öld.
Á þessum degi ætla félög og samtök sem tengjast náttúruvísindum, náttúruvernd og útiveru að efna til blysfarar kringum Grænavatn í Krýsuvík.
Brottför með rútu frá skrifstofu Ferðafélags Íslands Mörkinni 6 kl. 14, sunnudaginn 8. janúar. Fargjald í rútur er kr. 1000 og greiðist við brottför. Þeir sem fara á einkabílum greiða ekki gjald. Þátttakendum í gönguferðinni eru útveguð blys en fólk er einnig hvatt til að taka með sér eigin blys eða kyndla. read more