Aðalfundur Hraunavina var haldinn laugardaginn 31. nóvember í Gaflaraleikhúsinu við Víkingastræti í Hafnarfirði.
Formaður setti fundinn og kosnir voru fundarstjóri og ritari. Fundarstjóri var Lárus Vilhjálmsson og Ragna D. Davíðsdóttir ritari.
Dagskrá:
- Ritari las eldri fundargerð frá aðalfundi 2014.
- Ragnhildur Jónsdóttir formaður flutti skýrslu stjórnar.
- Kristinn Guðmundsson gjaldkeri lagði fram reikninga. Voru þeir samþykktir einróma.
- Kosið var í stjórn Hraunavina.
- Önnur mál.
Úr skýrslu stjórnar:
- Farið var í tvær göngur á árinu, aðra í Búrfellsgjá og hina að Eldvörpum.
- Í apríl voru sendar inn athugasemdir vegna fyrirhugaðrar Suðurnesjalínu 2.
- Félagsfundur var í júní þar sem Skúli lögmaður útskýrði dóm Hæstaréttar yfir níumenningunum sem ákærðir voru vegna mótmæla í Gálgahrauni.
- Stjórn félagsins hefur tekið við umsjón með heimasíðu og vefhýsingarkerfi.
- Sett hefur verið upp síða félagsins á Facebook og stofnaður hópur félagsmanna þar.
- Söfnunarsjóði var ráðstafað til greiðslu málskostnaðar níumenninganna og stóð þar á jöfnu. þar með talið fé það sem safnaðist á tónleikum Bubba og vegna sölu málverka.
Kosið var í stjórn Hraunavina, eftirtaldir voru kjörnir:
- Ragnhildur Jónsdóttir, formaður
- Kristinn Guðmundsson, gjaldkeri
- Gunnar Örvarsson
- Ragnar Unnarsson
- Viktoría Áskelsdóttir, ritari
- Ragna Dagbjört Davíðsdóttir, varamaður
- Gunnsteinn Ólafsson, varamaður
Skoðunamaður reikninga var kosinn Steinar Lúðvíksson.
Önnur mál:
- Næsta mál sem Hraunavinir munu láta sig varða er vegna Suðurnesjalínu 2. Halda áfram baráttu vegna línumála.
- Halda áfram skipulögðum gönguferðum.
- Reynir Ingibjartsson sagði frá sögulegu efni félagsins í sinni vörslu.
- Kristinn Guðmundsson hefur beðið um aðstöðu fyrir félagið að Bjarnastöðum.
- Reynir Ingibjartsson sagði frá hreinsunarátaki sem félagið hefði áður staðið fyrir og reynst vel.
- Gunnsteinn Ólafsson óskar eftir því að gerast ármaður félagsins. Ákveðið að fara yfir lista ármanna.
- Gunnsteinn Ólafsson lagði til að sett yrði upp skilti í Garðahrauni þar sem mótmælin hefðu staðið. Sú hugmynd kom upp að setja upp sýningarsvæði undir brúnni með myndum af vettvangi 21.10.2013.
- Pétur Stefánsson lagði fram fyrirspurn um hvort hálendið og málefni þess væri ekki eitthvað sem Hraunavinir ættu að láta sig varða.
- Farið yfir skaðabótamál 10 Hraunavina vegna handtöku við mótmæli í Gálgahrauni. Ragnheiður Elfa lögfræðingur greindi frá.
- Rætt um að þau félagasamtök er láta sig varða náttúruvernd hittist
meira og vinni meira saman. - Eydís Franzdóttir kom og fjallaði um fyrirhugaða Suðurnesjalínu 2 og auk þess stæði til innan þriggja ára að gera Sandskeiðslínu yfir
helstu vatnsból höfuðborgarsvæðisins.
Til stjórnar var vísað eftirfarandi:
- Undirbúa ályktun um hvort Hraunavinir taki afstöðu til málefna
hálendisins og að það skuli vera einn þjóðgarður. - Hvort setja eigi upp skilti í Gálgahrauni þar sem komi fram að
Hraunavinir hafi staðið fyrir mótmælum þar og hvort setja eigi upp
sýningu undir brúnni í Gálgahrauni með myndum af vettvangi 21.okt 2013.
(útdráttur)
One comment