Category Archives: Lög félagsins

Félagsstarf Lög félagsins

Aðalfundur Hraunavina 2019

Aðalfundur Hraunavina verður haldinn laugardaginn 12. október 2019 kl. 10.30.

Fundarstaður: Álfagarður í Kjós (keyrt 7 mínútur inn eftir Hvalfjarðarvegi, tvö hvít og blá hús ofan vegar).

Dagskrá:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf:
  2. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  3. Fundargerð síðasta aðalfundar lesin. Umræður og afgreiðsla
  4. Skýrsla stjórnar og umræður
  5. Reikningar síðasta reikningsárs, umræður og afgreiðsla
  6. Breytingar á lögum félagsins hafi lagareytingatillögur borist
  7. Kjör stjórnar og skoðunarmanns reikninga
  8. Önnur mál

Kaffi, meðlæti og spjall

Með baráttukveðjum

f.h. stjórnar

Ómar Ragnarsson formaður

Lög félagsins

Lög Hraunavina

Lög Hraunavina

1. grein

Félagið heitir Hraunavinir. Heimili þess og varnarþing er í Garðabæ.

2. grein

Markmið félagsins er að kynna  verndargildi náttúrufyrirbæra og lands­lagsheilda, ekki síst í Álftaneshreppi hinum forna, og fylgjast náið með skipulags­málum og fram­kvæmdum með það sjónarmið í huga að vernda eins og unnt er fágæt um­hverfis­­verðmæti. Félagið getur einnig látið  til sín taka  þegar  kemur að  verndun annarra verðmætra náttúrufyrirbæra á Íslandi.

3. grein

Rétt til að gerast félagar hafa allir þeir sem láta sér annt um náttúru Íslands, umhverfisþróun og byggðamál. Inntaka nýrra félaga skal fara fram á aðalfundi. Stjórn er þó heimilt að samþykkja inntöku nýrra félaga sem njóti fullra réttinda frá þeim tíma. Staðfesta skal samþykki stjórnar á næsta aðalfundi.

4. grein

Félagsmenn greiða árgjald til félagsins. Upphæð árgjalds skal ákveðin á aðalfundi ár hvert. Félagið aflar sér einnig tekna með styrkjum og frjálsum framlögum.

5. grein

Stjórn félagsins skipa fimm menn og tveir til vara sem hafa þeir  rétt til setu á stjórnarfundum. Stjórnin er kjörin á aðalfundi. Hún er kosin til eins árs og skiptir með sér verkum. Skoðunarmaður reikninga skal einnig kjörinn á aðalfundi. Til að skuldbinda félagið þarf samþykki þriggja stjórnarmanna.

6. grein

Formaður boðar til stjórnarfunda og stýrir þeim. Stjórnarfundur er lögmætur ef hann er skipaður þremur stjórnarmönnum hið minnsta. Varamenn koma í stað  stjórnarmanna sem  ekki geta mætt á stjórnarfundi.

7. grein

Gjaldkeri annast fjármál félagsins, s.s. innheimtu félagsgjalda og greiðslu reikninga. Hann heldur bókhald um fjárreiður félagsins og skal ganga frá reikningum þess fyrir hvern aðalfund.

8. grein

Ritari ber ábyrgð á gögnum félagsins og varðveislu þeirra. Hann skal sjá til þess að ritaðar séu fundargerðir á fundum stjórnar, félagsfundum og aðalfundum og þeim haldið saman. Ritari hefur umsjón með  félagaskrá. Ritari er staðgengill formanns.

Stjórninni er heimilt að  fela trúnaðarmanni sínum umsjón heimasíðu félagsins.

9. grein

Aðalfundur hefur æðsta vald í málum félagsins og skal hann haldinn í október ár hvert. Á aðalfundi eiga allir félagsmenn atkvæðisrétt. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum á aðalfundi um afgreiðslu mála sé ekki kveðið á um annað í lögum þessum. Stjórn félagsins boðar til aðalfundar með minnst viku fyrirvara. Með aðalfundarboði skal fylgja dagskrá aðalfundar, lagabreytingatillögur og aðrar tillögur sem fyrir liggur að komi til afgreiðslu á fundinum. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað.

Á aðalfundi skulu eftirfarandi mál ætíð vera á dagskrá:

– Kjör fundarstjóra og fundarritara

– Fundargerð síðasta aðalfundar. Umræður og afgreiðsla

– Skýrsla stjórnar og umræður

– Reikningar síðasta reikningsárs, umræður og afgreiðsla

– Breytingar á lögum félagsins hafi lagabreytingatillögur borist

– Kjör stjórnar og skoðunarmanns reikninga

– Önnur mál

10. grein

Stjórn félagsins boðar almenna fundi í félaginu þegar henni þykir efni til. Skylt er að kalla félags­menn saman ef að minnsta kosti tíu þeirra krefjast fundar með skriflegum hætti.

11. grein

Breytingar á lögum félagsins verða einungis gerðar á aðalfundi enda hafi tillögur verið kynntar með fundarboði. Tillögur að breytingum á lögum félagsins skulu berast stjórn þess eigi síðar en tveim vikur fyrir aðalfund. Til að breyta lögum þarf einfaldan meirihluta greiddra atkvæða.

13. grein

Lög þessi öðlast gildi 1. nóvember 2014.

Samþykkt á aðalfundi Hraunavina 1. nóvember 2014

 

Félagsstarf Lög félagsins

Lög Hraunavina

Lög Hraunavina
read more »