Fyrstu dagana í desember hefur náttúran skartað sínu fegursta í froststillunum sem hafa verið dögum saman á suðvesturhorninu. Ískristallar og héla mynda skrautlegar frostrósir á hraunklettum, stráum og lyngi hvert sem litið er. Jarðvegurinn er gaddfreðinn og kristallarnir glitra og sindra dulúðugu geislaflóð þá stuttu stund yfir daginn þegar sólin er enn á lofti. Það er vel þess virði að klæða sig í skjólgóðan fatnað og góða gönguskó og halda í gönguferð eitthvað út í náttúruna til þess eins að njóta þessa sérstæða náttúrufyrirbæris á meðan svona er ástatt.

Hraunin eru undraveröld og á meðan veður helst jafn stillt og verið hefur að undanförnu bítur frostið ekki eins harkalega og þegar vindurinn blæs. Samt sem áður er nauðsynlegt að klæða sig vel því kuldinn er lúmskur. Þetta skiptir ekki máli á meðan gengið en um leið og staldrað er við í stutta stund til að dást að dýrðinni lætur frostið finna fyrir sér. Það ætti samt ekki að stöðva nokkurn þann sem kann að búa sig rétt til vetrargöngferðar.

Smellið á myndirnar til að stækka þær.