Hraunanöfn

Klettur í SelgjáHraunanöfn eru mun fjölbreytilegri en í fyrstu má ætla. Þetta sést þegar skoðuð er meðfylgjandi tafla yfir nöfn á nokkrum hraunum innan Álftaneshrepps hins forna. Ætlunin er að útbúa kort þar sem hraunanöfnum verður komið fyrir á réttum stöðum á loftmynd. Hraunanöfnin er sum hver mjög mikilfengleg og jafnvel upplýsandi en önnur geta verið nokkuð torræð. Fleiri nöfn á hraunum eru þekkt á þessu svæði, en taflan er sett fram til að vekja athygli á að hraun er ekki bara hraun, þau hafa gegnt mismunandi hlutverki eins og lesa má út úr sumum nafnanna.  

Á myndinni er Selkletturinn í Selgjá, nærri tóftum nokkurra selja sem eru í nyrsta enda gjárinnar. Myndin stækkar ef smellt er á hana.

1. Rjúpnadyngjuhraun 20. Gálgahraun 39. Kornstangarhraun 58. Brundtorfuhraun
2. Húsfellsbruni 21. Klettahraun (Klettar) 40. Selhraun 59. Hafurbjarnarholtshraun
3. Tvíbollahraun 22. Mosar 41. Hellisdalshraun 60. Stórhólshraun
4. Grindaskarðahraun 23. Smyrlabúðahraun 42. Hellnahraun 61. Eyjólfsbalahraun
5. Þríhnúkahraun 24. Gjárnar 43. Leynidalahraun 62. Bringur
6. Þjófakrikahraun 25. Norðurgjár 44. Hvaleyrarhraun 63. Einihólshraun
7. Kristjánsdalahraun 26. Seljahraun 45. Hraunhólshraun 64. Merarhólahraun
8. Hellur 27. Gráhellurhraun 46. Nýjahraun 65. Rauðhólshraun
9. Markrakahraun 28. Lækjarbotnahraun 47. Háibruni 66. Tóhólahraun
10. Dauðadalahraun 29. Stekkjahraun 48. Bruni 67. Þúfuhólshraun
11. Skúlatúnshraun 30. Sjávarhraun 49. Hrauntungur 68. Sléttahraun
12. Búrfellshraun 31. Hörðuvallahraun 50. Brenna 69. Laufhólshraun
13. Flatahraun 32. Hafnarfjarðarhraun 51. Kapelluhraun 71. Meitlahraun
14. Selgjárhraun 33. Helgafellshraun 52. Snókalönd 72. Bekkjahraun
15. Svínahraun 34. Kaldárhraun 53. Hrútadyngjuhraun 73. Brenniselshraun
16. Urriðakotshraun 35. Brunahryggur 54. Almenningur 74. Katlar (Katlahraun)
17. Vífilsstaðahraun 36. Óbrinnishólabruni 55. Hólahraun 75. Draughólshraun
18. Stórakrókshraun 37. Arnarklettabruni 56. Sauðabrekkuhraun 76. Flár
19. Garðahraun 38. Stórhöfðahraun 57. Fjallgrenshraun 77. Rauðamelshraun

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *